Frestur til að skila inn umsóknum vegna keppnisferða ársins 2025 er til miðnættis 12. janúar 2026.
Umsóknarsvæðið er opið til innsláttar. Hægt er að vinna með hverja umsókn jafnt og þétt frá opnun umsóknarsvæðisins með því að vista umsóknina en geyma það að senda hana í gegnum kerfið þar til árið er yfirstaðið. Vefslóðin sem verður til þegar umsókn er stofnuð í kerfinu hvert ár, og send er til tengiliðar við stofnun, gildir sem lykill að umsókninni. Geymið hana því vel!
|